MATARGATIÐ

þriðjudagur, ágúst 30, 2005

Sól sól skín á mig.

Jæja jæja.
Þá eru tengdó mætt til okkar.
Ægir sótti þau á Schiphol síðasta föstudag og gékk sú ferð ekki þrautarlaust fyrir sig.
Það var svo svakalega mikil umferðarteppa báðar leiðir, þannig að þessi ferð tók Ægi um 4, 5 tíma að keyra þessa leið sem tekur yfirleitt tæpa 3 tíma.
Ég var búin að græja flotta tapas rétti handa þeim( sem þeim fannst nú ekki ónýtt :)
Við fórum svo niður í bæ og borðuðum á kínverskum stað.

Síðustu dagar hafa veriða algjörir draumar í dós. Eini gallinn er að hann Ægir minn hefur verið að vinna :(
Veðrið hefur verið alveg frábært, eða um 25 - 30 gráður og sól. Ég er meira að segja aðeins brunnin.
Í gær vorum við í algjöru leti. Vorum bara hérna úti í garði í rólegheitum, skruppum upp í myllu (sem var reyndar lokuð á slaginu fjögur, en við komum þangað 16:01)

Í fyrradag skruppum við til Utrecht sem er borg hér rétt hjá.
Veðrið var alveg frábært og dagurinn líka :)
Fórum á markað og versluðum aðeins, en annars röltum við bara um og fengum okkur mat og drykk eða drykki :)

Fórum út að borða í fyrrakvöld og grilluðum svo í gærkveldi. Veðrið alltaf þvílíkt gott :)
Verðurspáin fyrir daginn á morgun er líka æði æði æði.
Meira síðar.

4 Comments:

  • At 11:26 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Frábært að heyra hvað þið hafið gott veður. Hafið það gott:)

     
  • At 11:44 f.h., Anonymous Nafnlaus said…

    já hafið það nú gott í sólinni og reyniði að sleikja hana fyrir okkur líka :) en heyrðu ég er á leið í bæinn að fá mér stöð 2 loksinns, þannig að nú get ég farið að taka upp fyrir þig hina ýmsu þætti sem þig þyrstir í að sjá ;)

    kveðja úr kuldanum!!!!!!!

     
  • At 12:22 e.h., Blogger Dagný said…

    Kúl kúl.
    Kannski ég fái þig til að taka upp idolið fyrir mig :) Það væri æði.

    Það eru nú nokkrar stöðvar hérna hjá mér sem Einsi hefði gaman af. Er að spá í að fá mér spólu til að taka upp fyrir hann smá svona mótorcross og svona :)
    værirðu ekki til í það Einsi minn?

     
  • At 9:48 e.h., Blogger Unknown said…

    Hún er ekki amaleg þessi sól okkar. Mikil gleði í garðinum mínum í dag. "potturinn fylltur" og buslað berrassaður (þeas krílin..hihi).

     

Skrifa ummæli

<< Home