Sjónvarpsmarkaðir
Ég á það til að detta inn í þessa blessuðu sjónvarpsmarkaði hérna. Sérstaklega einn þeirra sem er með alveg fullt af vörum sem mig langar mikið í og að sjálfsögðu finnast mér þær sumar bráðnauðsynlegar.
Hef reyndar ekki keypt nema 2 vörur þarna. Annarsvegar krem og hinsvegar magic bullet. En nú er ég sem sagt alveg komin í þörf fyrir að pannta aðeins meira :)
Þarf reyndar að kaupa mér meira svona andlitskrem (eins og Britney Spears og fleiri frægar gellur nota :) og svo er alltaf þetta koddavesen á mér. Mér finnast bara allir koddar vera vondir. Veit ekki hvað ég er eiginlega búin að kaupa marga kodda á síðasta ári..hmmmm...ætli þeir séu ekki svona 6. Og sá síðasti átti sko að vera sá allra besti. Rándýr koddi sem aðlagast að manni. Er búin að eiga hann núna í svona 2 eða 3 mánuði og ég er bara ekki að fýla þetta drasl. Virkar ekki rassgat. Þannig að nú er bara málið að fá sér einn úr sjónvarpsmarkaði. Hann getur bara ekki verið verri en þessir sem ég á. Koddinn heitir yubikasi pillow.
Þegar ég fór inn á www.telsell.com í morgun, eftir að hafa séð hann í sjónvarpinu, rakst ég líka á fleira sniðugt. T.d þessa líka sniðugu ísvél. Hver vill ekki eiga ísvél ha?? Síðan er eitthvað þarna sem heitir walkfit. Það væri nú gaman að prófa það. Þetta eru svona innlegg sem maður setur í skóna sína. Líf manns á að taka þvílíkum stakkaskiptum eftir að hafa keypt þau.
En svo er auðvitað fullt af rusli þarna inni líka sem manni finnst gjörsamlega út úr kú..og sénsinn að það virki. En.......... það væri samt gaman að prófa :)
Gaman að þessu.

1 Comments:
At 5:01 e.h., Nafnlaus said…
hehe fyndið þetta, og ég get alveg séð þig fyrir mér í lacy boy horfandi á sjónvarpsmarkaðinn og langa í allt þetta fína dót sem er alveg bráðnauðsinlegt að eiga, menn geta sko greinilega lifað sig inní allt sjónvarpsefni ;)
Skrifa ummæli
<< Home