MATARGATIÐ

mánudagur, ágúst 20, 2007

Strengjabína.

Við hjónakornin byrjuðu gærdaginn á skvassi. Ár og dagur síðan við fórum síðast saman. Jiii hvað þetta er skemmtilegt. Ég var nú bara svei mér þá mun betri en ég þorði að vona hi hi :)

En í dag er ég eins og gamalmenni. Rosa strengir út um allt í hinum ýmsu vöðvum sem ég var búin að gleyma að ég væri með. Grindin búin að vera agalega leiðinleg við mig undanfarið. Hún er nú samt þokkaleg í dag :) Ætla samt ekki að hoppa hæð mína strax. Kannski ég verði alveg bakk í kvöld. Vona samt ekki.

1 Comments:

  • At 6:44 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Ji Ji Ji Dagný sko, vá ég varð að segja þér, mín sat fyrir framan TV áðan og fletti milli stöðva þar sem hafa bæst frekar margar við inná þetta heimili, jæja nema hvað, hitti ég ekki eina kunnulega á skjánum hver heldurðu???? enginn önnur en Brooke vinkona okkar maður, hún var að spjalla við einhvern gaur sem heitir Nick og er kærasti Bridget, Bridget kom inn og allt í köku yfir því að mamma hennar og þessi Nick eru IN love... jæja og svo var Ridge gamli náttulega þarna og Taylor, Thomas orðin stór og giftur einhverri pæju á pappírunum sem hann vill að búi hjá þeim og Taylor búin að samþykkja og Ridge ekki hæst ánægður þar sem stelpan er svo ung. Já já svo nú máttu óska mér til hamingju Loksins;) hehe, veit þú ert búin að kíkja á þetta allt fyrir löngu en nú fer maður að fylgjst með " Glamour" á TV4+ korter í sex hvern dag hehe, ja svona allavega stundum. ;) heyrumst bráðum vonandi

     

Skrifa ummæli

<< Home