MATARGATIÐ

miðvikudagur, ágúst 24, 2005

Og.....koma svo

Hvernig væri nú að einhver tæki sig til og commenteraði aðeins hjá mér.
Það er nú frekar fúlt að blogga bara og blogga og fá engin viðbrögð.
Held ég sé búin að setja inn 4 pósta án þess að nokkur láti heyra í sér.
Alveg drullufúlt verð ég að segja.
Er kannski bara enginn að lesa þetta nema mamma?? og hún segist ekki kunna að svara svona bloggi.
hmmmmmm.

8 Comments:

  • At 2:19 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Jú jú Dagný mín, það er fullt af fólki sem les bloggið þitt :) Ég mæli með að þú prufir svona lúxus-bíó, þetta er alveg ótrúlega þægilegt því ef myndin er leiðinlegt þá er alltaf hægt að sofna og láta fara vel um sig!! Bestu kveðjur, Gunni

     
  • At 2:32 e.h., Blogger Dagný said…

    Takk takk Gunni minn. Þú bjargaðir alveg fyrir mér deginum.
    Hélt að ég væri bara alein í heiminum
    :)

     
  • At 4:37 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Sæl Dagný ...var bara að frétta af blogginu þínu...búin að lesa það allt og hafa gaman af. Gaman að sjá myndir af ykkur þarna í útlöndunum. Á Akureyri er 6 gráðu hiti og manni hlýnar aðeins við sólarmyndirnar ykkar. Bið að heilsa frænda ..Kveðja Hulda Ringsted

     
  • At 9:56 e.h., Blogger Unknown said…

    Fæ ég ekki óskarinn þetta árið???
    Ég er svo dugleg að kommenta (og þú líka hjá mér, sem betur fer :)
    Alma

     
  • At 9:35 f.h., Blogger Dagný said…

    Ó jú Alma mín.
    Það er nú langt í að einhver annar nái þér, þannig að þú átt von á því að fá Óskarinn í febrúar :)

    Takk líka Hulda. Gaman að heyra frá þér :)
    vona að ykkur líði þokkalega í kuldanum á Íslandi.

     
  • At 11:04 f.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Ég les bloggið þitt mjög reglulega, hefur fundist óþarfi að vera mikið að rífa kjaft. En þetta er glæsilegt hjá þér og gaman að heyra frá litlu fjölskyldunni í Hollandi og sjá myndir. Sumir mættu nú taka það sér til fyrirmyndar (hósthafdíshóst)...

     
  • At 12:34 e.h., Blogger Dagný said…

    segðu Mummi :)
    Sammála..Það væri voða gaman að sjá nýjar myndir á síðunni hennar Hafdísar.
    Sjáumst í Póllandi
    gaman gaman
    dh

     
  • At 1:40 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    huhummmm hvað ertu eiginlega að meina góða mín, ég reyni að leggja mig alla framm við þetta með commentin hjá þér :)

     

Skrifa ummæli

<< Home