MATARGATIÐ

föstudagur, maí 12, 2006

Það er nú margt sem ég skil ekki.

En það er samt eitt sem ég skil bara alls ekki og það eru múslimakonur. Það er alveg sama hversu heitt er úti alltaf eru þær kappklæddar. Þær eru ekki bara í einum kufli eða hvað þetta nú heitir heldur eru þær í einni spjörinni yfir hver aðra sem ég sé bara engan tilgang með. Svo eru þessar konur rennsveittar og eru í því ótt og títt að þerra ennið en það er nánast það eina sem sést á þeim.
Það voru tvær svona konur að æfa í ræktinni í gær. Ég hef nú bara aldrei séð annað eins. Þær puðuðu svoleiðis rosalega á cross-trainerunum. Ótrúlegt ef þær hafa komist slysalaust frá þessu. Ég sé mig a.m.k ekki fyrir mér á hlaupabretti eða öðrum tækjum í svona dressi. Ég yrði fljót að fljúga á hausinn eða hvað það nú verra. En ég er nú kannski frekar slæm. Ég má nú ekki einu sinni líta til hliðar á meðan ég er á brettinu þvi þá fæ ég svo mikinn svima.

3 Comments:

  • At 9:27 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Ég hélt að þessi föt sem þær væru í voru svo létt og þægileg að þeim væri ekkert heitt í þeim, það er kannski vitleysa í mér.
    Spurning hvort þú ættir að slást í hópinn hjá þeim og fara með létta lambhúsettu og þunnan klút og prófa ??:)

     
  • At 5:07 e.h., Blogger Dagný said…

    Jú jú þær eru örugglega í þunnum og fínum efnum. Sé þær t.d oft í hörfötum, en það sem ég skil bara alls ekki er það að þær eru svo mikið í því að fara í kjóla yfir kjóla og þar yfir eru þær kannski í 2 blússum og svo í hlýrabol þar yfir. Er ekki alveg að skilja.

     
  • At 10:32 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    já ég hef mikið verið að velta þessu fyrir mér líka! og um daginn fór ég að spá í hvernig í ósköpunum fæða þær börnin? fara þær einar inn á klósett og spíta þeim út því þær mega nú ekki sýna neitt!! púff þetta er svo furðulegt fólk hehe :o)
    kveðjur

     

Skrifa ummæli

<< Home