MATARGATIÐ

fimmtudagur, júní 02, 2005

Myndir

Jæja, þá er ég búin að læra það að setja inn myndir.
Þið getið skrollað neðst í bloggið til þess að sjá þær.
Nú getað líka allir þeir sem vilja skrifað comment (ekki bara þeir sem eru með bloggsíðu)
Látið endilega heyra í ykkur.
Gaman að því
dh

3 Comments:

  • At 10:54 f.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Halló
    Nú verður maður að vera duglegri að fylgast með fyrst þú ert komin með svona rosa flotta blogg síðu í bland við barnaland.
    Ji hvað ég er ánægð með að lesa fjörið á tónleikunum geðveikt ég hlakka ekkert smá til að fara hérna heima helst með grifflur og allt:), verst að þú getur ekki komið með mér og við rifjað um gamla stöllutíma:)
    Heyrðu vá nú er ég ánægð með þig að þú sért að blogga um Glæstar því ég þarf endilega að komast að því hver var að deyja - þetta er nú einu sinnni svona sameiginlegt áhugmál.. grunar samt það hafi verið Taylor??
    Svo er ég hætt með stöð 2 þannig að ég er ekkert inní glæstum núna.... horfi reyndar stundum á það ruglað.... ekki segja neinum þú þekkir þetta:)
    En heyri í þér og sé þig vonandi þegar þú kemur á frónið.
    bæjó

     
  • At 12:37 e.h., Blogger Dagný said…

    segi þér allt um glæstar arpur minn við fyrsta tækifæri :)
    Vertu endilega dugleg skrifa eitthvað skemmtilegt á þessa síðu mína :)
    knúseríknús
    dh

     
  • At 12:40 e.h., Blogger Dagný said…

    Eitt enn
    Segi ekkert hver dó þarna um daginn..en ég skal segja þér eitt. Sheila Carter skaut persónuna..spennandi

     

Skrifa ummæli

<< Home