MATARGATIÐ

þriðjudagur, desember 06, 2005

Ræktin

er mitt annað heimili þessa dagana.
Ég er búin að vera alveg ógeðslega dugleg þó ég segi sjálf frá :)
Æfði í 7 klukkutíma og 45 mín. í síðustu viku. Ég brenndi 2466 Kcal og af því var 51% hrein fita. Ótrúlega gaman að hafa svona puls mæli á sér sem gefur manni fullt af upplýsingum.
Mælingin á laugardaginn kom nokkuð vel út. Ég er alveg á áætlun sýnist mér.
Nú eru bara tæpar 2 vikur eftir af keppninni og mér sýnist nú á öllu að ég sé þokkalega búin að tapa henni þrátt fyrir dugnaðinn. En hann Ægir minn á nú alveg skilið að vinna hana, enda búinn að vera obbolega duglegur líka.
Ég kem kannski með lokatölur og niðurstöður fyrir jól :)
Góðar stundir.

1 Comments:

  • At 4:28 e.h., Blogger Unknown said…

    Hlakka til að sjá og heyra niðurstöðurnar
    Húrra fyrir þér. Þú ert ekkert smá dugleg :)

     

Skrifa ummæli

<< Home