02.06.06
Góður dagur í dag.
Mamma á afmæli í dag, orðin 55 ára gömul ótrúlegt en satt.
Við Ægir byrjuðum á því að fara í 3d sonar í morgun sem var algjör snilld. Það var alveg ótrúlegt að fylgjast með þessu litla dýri sprikla inn í bumbunni :)
Við mæðgur fórum svo í göngutúr í góða veðrinu í dag. Malín fór í rólur, rennibraut og fleira skemmtilegt. Vona að spáin rætist og veðrið verði áfram svona gott næstu daga.
Í kvöld buðum við svo mömmu út að borða á Maik sem er rosa flottur staður hérna niðri í bæ. Ég fékk mér hálfan risahumar í forrétt og nauatalund í aðalrétt, Ægir fékk sér gæsalifur og kálfakjöt og mamma fékk sér ostrur sem hún hefur nú aldrei smakkað áður (og mun sennilega ekki gera aftur :) og líka kálf. Við erum vel södd og sæl eftir þessa flottu máltið.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home