MATARGATIÐ

miðvikudagur, desember 07, 2005

Hvað er eiginlega hægt að vera mikið ósmekklegur?

Ég var niðri í rækt í morgun (eins og venjulega) og mikið rosalega varð ég mikið hneyksluð. Ég held án gríns að ég hafi bara aldrei orðið jafn gáttuð á minni löngu ævi.
Ég var að klæða mig í fötin mín eftir snögga sturtu þegar tvær eldri konur (svona um sjötugt) koma. Þær voru líka að koma úr sturtu og voru þær með skápa beint á móti mér.
Önnur þeirra fer að þurka sér vel og vandlega en finnst hún greinilega ekki vera orðin nógu þurr þegar hún byrjar að klæða sig í nærbrókina. Hún labbar því (með brókina niðri á miðjum lærum) að snyrtiborði sem er þarna hjá og byrjar að plása sig alla þarna að neðan með hárblásara. Þetta tók hana all nokkrar mínútur enda greyjið konan vel úfin þarna. Ekki hættir hún nú eftir þetta, heldur fer í það að láta blásarann aðeins þurka brókina sína líka. Ji minn eini hvað mér varð mikið niðri fyrir eftir þessa sjón.
Það er a.m.k nokkuð ljóst að ég ætla ALDREI að blása á mér hárið þarna aftur.

3 Comments:

  • At 7:15 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    OJJJJJJJ er hægt að vera ógeð..... þetta slær nú öllu þýsku við held ég, girr vona að brókin hafi verið hrein:) heheh

     
  • At 9:27 f.h., Blogger Unknown said…

    Þetta er nú meiri vibbinnn...jukkk

     
  • At 2:13 e.h., Blogger Dagný said…

    Já og það besta við þetta er að vinkonu hennar virtist ekkert brugðið við þetta. Ætli þetta sé ekki bara fastur liður hjá þeirri gömlu.

     

Skrifa ummæli

<< Home