MATARGATIÐ

fimmtudagur, október 06, 2005

Ji dúdda mía

Ég held svei mér þá að ég sé að fara af límingunum.....
B0ld og Grannar eru svooo spennandi þessa dagana. Allt að gerast :)

En ohh hvað er hægt að vera mikill nörri?
Ég er búin að sitja hérna fyrir framan sjónvarpið að bíða eftir Grönnum. Skildi bara ekkert af hverju þeir væru ekki byrjaðir :( sat samt sem fastast og hélt áfram að bíða. Og svo beið ég bara og beið og beið og fylgdist með einhverju leiðindar rugli. Fattað svo allt í einu að ég var að sjálfsögðu með sjónvarpið á vitlausri rás :( :( Sveppurinn ég.

Það er samt kannski ekki nema von að svona sveitadurgur eins og ég ruglist aðeins með allar þessar 200 stöðvar. Það bættust nefnilega nokkrar nýjar við í gær.
Gaman að því.

3 Comments:

  • At 3:51 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Hey mín kæra, hvernig var það ætlaðir þú ekki að fræða mig hvað væri að gerast í BOLD?:);) Þú verður eiginlega bara að setjast niður og skrifa mér meil:) E haggi??

     
  • At 4:06 e.h., Blogger Dagný said…

    Ég held að það væri ekki vitlaust.
    Ég fer bara strax í það á morgun :)

     
  • At 11:15 e.h., Blogger Unknown said…

    Sjónvarpsnörrinn þinn....

     

Skrifa ummæli

<< Home