MATARGATIÐ

föstudagur, mars 31, 2006

JESSSSSS AFTUR.

Við erum búin að fá nýja leigjendur :)
Hrikalega mikill léttir.

Og annað.
Ég er búin að kaupa mér skó :)
Þetta eru ekki brúðarlegustu skórnir. Eiginlega eru þeir bara alls ekkert brúðkaupslegir en ég vona nú samt að þeir sleppi undir kjólinn. Þetta eru sem sagt hálfgerðar töfflur með háum botni (pínu fyndið) og svo kemur svona hvítur renningur yfir ristinga og þar er silvurlituð spenna eða sylgja eða hvað það nú heitir. Sé mig alveg fyrir mér gellast á þeim þessum herna úti í sumar. Ekta sumarskór. Ég held samt að ég verði að mæta á gúmmístígvélunum í kirkjuna ef það fer ekki að hægja á snjónum þarna heima. Ég gæti jafnvel reynt að girða kjólinn ofaní þau :)
Ji hvað ég á eftir að vera smart :)

3 Comments:

  • At 3:27 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Er semsagt svona sumarþema í brúðkaupinu, ég meina það er nú allt svo sumarlegt hehe

     
  • At 3:56 e.h., Blogger Dagný said…

    jú jú..það verður svona Hawaii þema, allir með kransa um hálsinn og í strápilsum
    :)

     
  • At 10:59 f.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Frábært!!!
    Til hamingju

     

Skrifa ummæli

<< Home