MATARGATIÐ

miðvikudagur, september 03, 2008

Klipping, litun, skutla, sækja, bíó, spreð, pökkun, pössun og fleira.

Já já. Það er ýmislegt í gangi þrátt fyrir lítið blogg.  Nóg að gera hérna í hollandinu. 
Ætla að byrja á hárinu á mér.  Jii hvað ég hlakka mikið til að hitta hana Lindu mína Rós og fá almennilega klippingu og litun. Ég hef bara aldrei verið almennilega ánægð með hárið á mér allt of lengi.   Er búin að fá nágrannakonu mína hingað til mín til að redda mér (sem er nota bene lærð hárgreiðslukona) en hún vinnur við að fara heim til fólks og klippa og lita.  Sér um hárið á næstum öllum hérna í götunni og mörgum mörgum fleiri.  Held þetta þekkist nú ekki mikið heima.  Hún vinnur sem sé ekki á neinni stofu, bara sjálfstætt en tekur samt ekki kúnna heim til sín.  Mér fannst þetta algjör snilld fyrst en svo varð ég frekar þreytt á þessu þar sem öll handklæðin mín eru orðin ansi sjúskuð eftir þetta, og svo var mig bara farið að langa að komast aðeins út úr mínu húsi og fá smá næði, geta lesið blöð og drukkið kaffi.  Þægilegt að þurfa ekki að redda pössun en bara nauðsynlegt samt að komast aðeins frá. 

En jæja áfram áfram.  Fékk tíma á stofu sem er rétt við miðbæinn.  Eiginlega í miðbænum samt.  En það skiptir nú ekki máli.  Mætti á mánudaginn var eldspræk, var spennt að láta snyrta mig aðeins, var alveg farin að þrá breytingu og ekki síður litun í rót.   Ég var orðin svo þreytt á því að hafa svona obbolega mikið þykkt hár og allt í svipaðri sídd.  Alltaf sama sama, tagl og spöng alveg sama hvort ég sé í sportinu eða úti að borða.  Get bara alls ekki haft hárið slegið þar sem ég kafna úr hita.  Bað kelluna um að taka vel innan úr því til að létta það en sagði samt að ég vildi ekki stytta það mikið.  Sagði svo ð ég vildi fá topp en þá horfði mín bara skrítið á mig og sagði.  Öööö..nei nei, það fer þér ekki.  Við skulum bara frekar klippa svona til hliðar daddaraddada og dúdú og það verður æði.  Sá fyrir mér þvílíka hollenska horrorinn og sagi bara nei nei.  Við sleppum þessu bara. 
Ég hef aldrei séð svona hraðar hendur í hári.  O boy.  Fyrst klippti hún mig og ég bara nennti ekki að tefja hana með endalausu brasi.  Vissi það strax að hún myndi aldrei ná að gera það sem mig langaði.  Kellingin heillitaði mig svo á 7 mínútum og náði að klippa 2 kúnna á meðan ég var að bíða með litinn í hausnum.  Þennan mánuðinn var nudd í boði fyrir þá sem fá hárþvott og að sjálfsögðu þáði ég það.  Hefði kannski betur átt að sleppa því þar sem ég var alltaf við það að skella upp úr og eftir þetta "frábæra" nudd var ég komin með dundrandi hausverk.  Gellan kunni greinilega ekki alveg til verka.  Hef bara aldrei lent í öðru eins.  Það var ekkert verið að nudda og strjúka mann blíðlega, heldur var bankað og potað ótt og títt og snúið upp á bæði skinn og hár á mér. Fyrst hélt ég án gríns að hún væri bara að grínast, en nei nei. 
Liturinn kom bara fínt út.  Næstum svartur en samt ekki.  Mjög dökk brúnútísvart litur.  En ég er sama gamla eftir þetta, með mitt tagl og spöng.

 

IMG_3389 smá brot af varningnum frá H&M :)

Malín er búin að vera í skólanum alla vikuna.  Gengur rosa vel, ekkert mál. Er bara voða glöð og kát.  Svolítið pirrandi að vera bundin alltaf yfir því að þurfa að sækja hana alltaf í hádeginu. Kemst því aldrei lengra í burtu en bara út í búð eða í sportið.   Hún byrjar klukkan korter í níu og er til korter yfir tólf, fer svo aftur korter yfir eitt og er til hálf fjögur.  Við Emma höfum farið í sportið fyrir hádegi (þá daga sem er opið núna) og erum að koma heim rétt fyrir tólf.  Emma hefur verið að vakna allt of snemma eða um klukkan sex og er því orðin ansi mikið þreytt í hádeginu.  Við höfum svo farið að sækja Malín og fengið okkur hádegismat saman.  Höfum svo þurft að bíða til eitt með að labba af stað í skólann. (sem er við hliðina á raðhúsinu okkar sem betur fer) Emma fær sér svo blund eftir það og er þá orðin allt of þreytt.  Stundum sofnaður hún alveg um leið en stundum er hún með þvílíka vesenið enda orðin alveg búin á því.  Hún sefur svo í einn til tvo tíma sem er bara ljúft.  Hef þá ´tima til að brasa í þvotti, pakka eða brasa í garðinum.  Það er samt stundum þannig að ég þarf að vekja hana til að vera komin í skólann til að sækja Malín.  Aljgört vesen.  Það verður  ansi mikið öðruvísi að fara til Íslands þar sem þær systur verða í leikskóla 8 tíma á dag 5 daga í viku.

Konurnar hérna í hollandi, bæði vinkonur og nágranakonur eru svo gjörsamlega hlessa á þessu sístemi okkar íslendinga.  Sumar ganga svo langt að segja að konur á íslandi ættu ekki að eiga börn fyrst þær geta ekki hugsað um þau sjálfar.  Geta þær ekki bara fengið sér kött sagði ein þeirra.  Mörgum eða flestum þeirra sem ég þekki finnst gjörsamlega út úr Q að skilja börnin eftir hjá öðrum svona lengi og alla daga.  2 vinkokur mínar og 1 sem ég kannast vel við sem búa allar í minni götu eiga 2-3 börn.  Ein þeirra vinnur í kjörbúð 1 dag í viku frá 8-3.  Mamma hennar og pabbi koma þá og passa strákinn sem er 4 ára (en það er frí á föstudögum í skólanum).  Henni finnst þetta sko aldeilis alveg nóg.  Spurði mig bara hvað ég ætlði bara að gera þegar ég færi í skóla alla daga átta tíma á dag.  Ég sagði að þetta væri bara venjulegt hjá fólki á íslandi.  Hún skilur þetta bara ekki.  Hvenær bara hefurðu tíma fyrir þvottinn, versla inn, ryksuga, skipta á rúmmum, brasa í garðinum og þess háttar?.  Góð spurning.  Það verður kannski bara alltaf allt á hvolfi hjá okkur.
Bjánalegt og alveg út í hött að þurfa að sinna þessum hlutum á kvöldin og um helgar.  Ég er bara á því eftir að eiga heima hérna  að á kvöldin er FRÍ og um helgar LÍKA.  Engin þrif og leiðindi.  Um helgar á fjöldksyldan að gera eitthvað skemmtilegt saman.
Þess vegna vona ég svo innilega að ég geti og hafi tök á að vinna ekki alla daga allan daginn í framtíðinni.   Kannski bjartsýni en maður má vona :).


Fékk barnapíuna okkar til að passa á miðvikudaginn var.  Ótrúlegt vesen að hafa barnapíu sem er allt of upptekin.  Hún er að byrja í næstu viku í ljósmæðraskóla og verður því ekki í Oisterwijk nema um helgar.  Við vorum búin að bóka hana með 2 mánaða fyrirvara fyrir Oisterwijk Swing sem er æðisleg Jazz skemmtun hérna í miðbænum.  Ég er nú ekki mikið fyrir jazz sjálf en það er bara svo miklu meira um að vera.  Fullt af veitingastöðum sem setja upp tjöld, borð og flottar skreytingar.  Fólk í sínu fínasta pússi en auðvitað mæta hinir ótrúlegustu sveitalubbar sem eru í svo skelfilegum múnderingum en það gerir þetta allt ennþá skemmtilegra :).  Okkur var bara farið að hlakka svo til að fara og njóta þess að vera á þessari skemmtun 2 ein í fyrsta sinn.  Höfum alltaf farið heim allt of snemma út af stelpunum og höfum því misst af aðal atriðunum.  En ohhh..arg. 
Hún afbókaði í vikunni.  GRENJ.  Þannig að 4 árið í röð sitjum við heima og missum af.
Fyrir viku síðan var hún búin að spurja hversu lengi við ætluðum að vera og ég sagði tja ekki voðalega lengi. Við yrðum pottþétt kominn heim fyrir miðnætti.  Þá sagði hún mér það að vinur hennar væi að halda upp á afmælið sitt og það yrði voða gaman að geta kíkt aðeins þangað.  Mér fannst það bara allt í fína, en svo núna síðast að þá sagðist hún bara alls ekki geta komið þar sem hún væir að taka þátt í söngleik og yrði á æfingu allt laugardagskvöldið.  Argggg..  Gaman fyrir hana en ekki fyrir okkur.

En..
Hún passaði fyrir okkur á miðvikudaginn var.  Stelpurnar alveg sáttar við hana þó þær vilji nú frekar hafa mömmu hjá sér :)
Ég brunaði á bílnum klukkan fjögur, sótti Ægi í vinnu og við fórum í H&M.  Ætlaði að kaupa MÉR eitthvað ýmislegt fyir íslandsferð.  En...allir fengu mun meira en ég.  Verslaði buxur í ræktina , og 2 svarta stuttermaboli.  Glatað.  Ég sogast bara alltaf að barnadeildinni og get ekki einbeitt mér  að mér.  Finnst bara svo ótrúlega gaman að kaupa á þær systur. Nú á hún Emma mín sirka 40 peysur og fullt af buxum þannig að það þarf ekki að kaupa það á næstunni :). Malín er líka komin með fulla ferðatösku af nýjum fötum sem verður gaman að prófa þegar hún byrjar í leikskólanum.  Ægir var fljótur að velja sér eina 10 boli, hettupeysu og fullt af nærbrókum.  Og margt í alveg fáránlegum litum hihi.  Hélt hann væri kominn með rugluna þegar ég sá bæði skær bláa og neon appelsínugula boli með silvruðu glimmeri á. og einn ekta bol frá 1980  :)  Ekki alveg það sem ég hef vanist. En það er nú aldeilis dandala gott að við séum ekki bæði í að kaupa bara svart og aftur svart.
Eftir að Ægir var búinn að kaupa og kaupa og ég búin að kaupa og kaupa á þær systur að þá heldum við á nýjan stað þar sem við fengum voða góðan mat :)..jommí.  Fórum svo í bíó í glænýtt bíóhús sem er RISA stórt. ótrúlega gaman að fara í bío og fá popp og kók en myndin var ekki alveg að rokka (sáum X-files).  Salurinn var algjört æði, stólarnir þvílíkt stórir og mjúkir og plássið á milli sætaraða gífurlegt. Án þess að ýkja að þá átti ég erfitt með að ná með táslurnar yfir í stólinn fyrir framan mig.  Þrátt fyrir að vera þessi hobbiti að þá er þetta ótrúleg lengd þarna á milli. 

Yfir í helgina 22-24 ágúst.  (Svona þar sem ég blogga svo sjaldan.)

Vinkona mín frá London kom til Oisterwijk og var yfir helgina.  Hittumst á föstudeginum voða gaman.  Byrjuðum á að fá okkur að borða klukkan fimm á einum veitingastaðnum.  Röltum svo í búðir og og fórum svo á nokkur kaffihús og á bar þar sem við fengum okkur fullt af tapas...jommí.
IMG_3363  Fyrsti hittingurinn í meira en ár.  Skemmtum okkur obbolega vel.  Hlógum ótrúlega mikið og skemmtum okkur svo vel 2 saman.  Held svei mér þá að þetta sé í 2 skiptið sem ég kem heim rétt eftir miðnætti (ótrúlegt rall á minni) síðan ég flutti hingað út.  Hitt skiptið var þegar ég Alma, Annemike og Þórunn fórum út að borða en það var fyrir mörgum árum síðan..hihi :).  Hvað átum við þá Alma mín?  :)

Daginn eftir, laugardaginn 23 ágúst vorum við boðinn í grill til Marielle og Willems en þau búa í sama raðhúsi og við.  Elisa og Albert sem búa líka í götunni ákváðu ásamt þeim fyrnefndu að bjóða okkur í kveðjugrill.  Voða fínt, gaman að hitta þau og fá að borða.  Þau eru öll alveg frábær, góðir vinir sem vilja allt fyrir mann gera.  Á eftir að sakna þeirra :(.
Hollendinar eru svo sniðugir.  Veðrið var frábært.  Gátum borðað úti, þau þurftu ekkert að gera nema setja sósur og meðlæti á borð, skera snittubrauðið og grilla.  Ekkert stúss og bras :)  Ekki mikið vesen enda allt keypt tilbúið.

IMG_3373

IMG_3377

24 ágúst átti sæti litli bróðir minn afmæli, en hann varð ÞRÍTUGUR.  :) 
myndir frá Linnen Þessi sæta mynd var tekin af okkur fjölskyldunni þegar ég varð þrítug.  Sem var bara fyrir nokkrum dögum :)  Þau voru svo sæt að koma öll að heimsækja mig.  Linda systir átti svo afmæli þann 28 og varð bara pínu pons eldri.

 

Laugardagurinn var góður.  Fórum á ströndina snemma dags og spókuðum okkur í bongoblíðu. Seinna um daginn fengum við svo skemmtilega gesti í heimsókn.
Teddi vinnufélagi Ægis sem heitir reyndar Gertjan (en þar sem ég gat aldrei borið fram nafnið hans hér í gamladaga að þá er hann bara kallaður Teddi) kom ásamt Ernu konu sinni og Nic syni þeirra í mat.  Byrjuðum á að bjóða þeim upp á skeljasúpu sem var algjört æði.  Jommi jommi.  Ótrúlega gott.  Ég er fyrst núna til í að éta þetta.  Hef alltaf fundist þessar skeljar svo óspennadi, enda ótrúlega ljótar.
Búin að versla í næsta skammt  og bíður það í fína ísskápnum:).
Í aðalrétt vorum við með tæ-kjúkling  sem eru bringur sem eru marineraðar í hunangi, lime, hvítlauk, engiferi, chili og fleiru.  Síðan bornar fram með auka chili, vorlauk, koriander og mintu fyrir þá sem vilja. 
Var einnig með lax sem ég makaði kapers og fetaosti á.  Rosa gott.  Vorum svo með ferskt salat, mangosalat, hrísgrjón og franskar(bara hollenskt) og kláraðist allt saman upp til agna.  Gestunum fannst þetta greinilega hrikalega gott allt þar sem ég var  búin að reikna með miklum afgangi fyrir næsta dag hihi. :)  En ég var að sjálfsögðu bara ánægð með hvað þetta heppnaðist rosalega vel.

 IMG_3408

Fórum í frábæran hjóltúr á sunnudagsmorguninn.  Hjóluðum í fleiri fleiri og ennþá fleiri kílómetra. Enduðum á trampolínos þar sem við fengum okkur hádegisverð. 
Seinniparturinn var ljúfur.  Lagðist á sólbekk á meðan Emma svaf.   Ótrúlega notalegt.  Það verður ekki mikið um það heima held ég :)

IMG_3410 Ægir og Emma langt á undan.

IMG_3412 Ótrúlega fallegt umhverfið hérna hjá okkur.  Ekki í fyrsta sinn sem ég skirfa það.

IMG_3413 Gæti setið endalaust á þessum stað og bara horft :)  Æðislegt.

 



Meira von bráðar.

3 Comments:

  • At 11:47 f.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Bara kvitta fyrir skemmtilegan lesning, tók þetta í tveimur hlutum;)
    Ég er nú inná bandi Hollendingana að hluta hvað varðar börnin, finnst alltof mikið að hafa börnin 8 tíma á dag í leiskólanum 5 daga vikunnar nema maður nauðsynlega þurfi þess en versta er bara að íslensk vinnusamfélag er alltof ófjölskylduvænt hvað þetta varðar og fáir hafa val með vinnutíma sem er glatað. Ég er búin að prófa bæði hafa barn lengi á leikskóla og svo styttri tíma og finn mikinn mun og geri mikið til að geta valið frekar það síðarnefnda,
    En allavega takk fyrir skemmtilegt blogg, heyrðu ætlum við að heyrast áður en þú kippir tölvunni úr netsambandi???
    Vá hvað þetta var langt komment jæja í stíl við bloggið;)
    Anna Rósa

     
  • At 9:20 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Hæ mín kæra. Búin að hugsa svo svaðalega mikið um þig undanfarið, skammast mín svo þar sem ég hef ekki drattast í að skype-ast.
    Það er búið að vera klikkað að gera en það er samt alltaf tími fyrir smá spjall. Bara leti og aumingjaskapur sko.
    Ætlaði nú samt að ath með spjall fyrir nokkrum dögum en sá þá að það var lasiríusarvesen í gangi og einnig að mamma þín væri að koma. Verðum að heyrast áður en tölvunni verður pakkað niður. Hún verður sennilega síðust ofan í tösku :) hihi.

    Þarf svo að fá heimilisfangið ykkar. Verð að koma á ykkur smá pakka áður en ég fer.
    Langt comment hér líka :)
    Skemmtu þér obbolega vel með múttu þinni. Knúsaðu hana frá mér. :)
    dúí.

     
  • At 3:01 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    elska að lesa bloggið þitt...:-)

    og jesús hvað ég væri til í svona endalausar hogm ferðir!!!

    Kv. kristjana

     

Skrifa ummæli

<< Home