MATARGATIÐ

miðvikudagur, nóvember 02, 2005

Alveg bakk.

Úfffúff.
Fór í body pump í morgun og ég get svo svarið það, ég er alveg punkteruð.
Ellin sennilega farin að segja til sín.

2 Comments:

  • At 3:00 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Krafturinn í þér kella samt að drífa þig alltaf í leikfimi, ég hef nú ekki gert svoleis síðan í fyrravor, en hef þó jú labbað aðeins hér og skellti mér í búð núna um helgina og keypti mér sippuband;) er að hugsa um að sippa soldið hehe.
    Hvaða frænkur þínar 3 eru að koma í heimsókn? og verður fest þegar þú átt afmæli? var að spá í hvort ég ætti að skreppa:)

     
  • At 4:57 e.h., Blogger Dagný said…

    Jájá, nú er það bara ræktin 6x í viku, nema núna í morgun. Ég er svo svakalega slöpp með einhverja pestadruslu. Já og svo kemst ég sennilega ekki í fyrramálið heldur. Malín fer í sprautu og skoðun.
    Það verður sko aldeilis gestagangur hérna hjá okkur. Linda kemur eftir akkúrat viku og verður fram á mánudag og mamma kemur svo á laugardaginn eftir rúma viku. Þá á sko að halda fyrstu afmælisveisluna. Svo koma þær Gugga og Didda systur mömmu og Ingibjörg hans Hauks þann 17 nóv og verða í 6 daga.
    Við Ægir ætlum voða fínt út að borða saman á afmælisdaginn, en svo erum við búin að redda okkur risastórum bílaleigubíl, og ætlum við að taka allt liðið með okkur í óvissuferð yfir helgina þannig að það er kannski hægt að segja að ég verði að heiman þessa helgi.
    Mamma fer svo með þeim heim, en kemur aftur í desember.
    Skemmtielgt

     

Skrifa ummæli

<< Home