MATARGATIÐ

fimmtudagur, júlí 31, 2008

Enn ein langlokan.

Það er svona þegar það líður allt of langt á milli blogga.  Þá er bara allt of mikið búið að gerast hjá manni.  Nokkrir búnir að reka á eftir mér þannig að hér kemur það sem hefur drifið á daga mína síðan síðast.

Langar samt að byrja á því að þakka fyrir commentin.  Æðislega gaman að fá svona skemmtileg comment :).


Mamma kom til okkar nokkrum dögum eftir að við komum heim frá spáni.  Stoppaði í  2 vikur sem voru allt of fljótar að líða.  Veðrið hefði mátt vera mun betra, allt of oft rigning og hálf kalt :(.  Hún fékk samt nokkra daga sem voru mjög góðir og náði hún sér í all nokkrar freknur og nokkra rauða sólbrunabletti já og ekki má gleyma öllum bitunum sem hún fékk síðustu dagana.  Hef bara sjaldan séð annað eins.  Hún var án gríns eins og eftir hópstlagsmál.  Öll bólgin og þrútin í andlitinu.

IMG_2991 (Medium)

Litli ísskápurinn okkar var smekkhlaðinn þegar mamma mætti á svæðið.  (Þessi mynd er sérstaklega fyrir tengdó :) )  Hlakka til að fylla nýja flotta ísskápinn okkar sem er væntanlegur í næstu viku.  Ekki að það sé neitt pláss fyrir hann hér samt.

IMG_2995_edited-1 (Medium)
Malín fékk að fara eftir háttatíma út á völl til að sækja ömmu.  Var vel græjuð með heyrnatól og I-pod með sögum og tónlist.

IMG_3000 (Medium)

Daginn eftir grilluðum við heilbakaðann fisk í salti.  Mjög gaman.

IMG_3013 (Medium)

Á hverju ári í kemur risastórt tívólí í bæinn til okkar.  Þetta er í 3 skiptið sem mamma kemur akkúrat á þeim tíma.  Að sjálfsögðu var farið í tívólí og nokkur tæki prófuð.  Stelpurnar skemmtu sér samt best á hestbaki.  Vildu helst bara vera þar.

IMGP7416 (Medium)

 

 

Á föstudaginn fórum við hjónin í helgarferð til Amsterdam.  Svaka gaman og ósköp ljúft að fá að sofa í friði.  Ekki margar nætur sem ég hef verið án þeirra systra.  Ætli þær séu ekki svona 3 sirka fyrir utan tímann sem ég var á spítalanum eftir að Emma fæddist.
Við hjóluðum niður á lestarstöð og tókum lest.  Vorum í Amsterdam klukkan hálf sex sirka.  Röltum okkur upp á hótel sem var staðsett í miðbænum.  Þetta var  Radison SAS hótel sem við fengum voða fínt herbergi á.  Tókum eftir því upp á vegg að þessar 2 nætur hefðu átt að kosta um 100.000 en sem betur fer átti Ægir punkta sem við nýttum :).
Höfðum fataskipti og kíktum svo aðeins á hótel barinn sem var virkilega flottur.  Tókum okkur svo taxa á Líbanskan stað sem heitir Nomads. Vorum búin að bóka borð þar fyrr í vikunni.   Staðurinn var vel falinn.  Ekki týpískur staður sem fólk rambar bara á og fær sér að éta.  Mig var búið að langa svo að fara á stað sem væri þannig að við myndum helst bara sitja á pullum og borða með höndunum og rættist það nú alveg:).  Þetta var a.m.k mjög líkt því sem ég hafði hugsað mér.  Þegar við komum inn á staðinn tók mjög krúttlegur strákur á móti okkur í furðulegri munderingu.  Hálfgerðum kufli sem var samt mjög opinn þannig að það skein í horaða útlimi.  Hann leiddi okkur svo inn í sal sem var mjög dimmur. Þar var risastór kringlóttur sófi þar sem fólk sat á með  litla smárrétti á stóru fati.    Utan við þennan hringsófa var svo pínu gönguleið fyrir þjónana en svo kom annar stór hringur sem var upp við vegginn og þar sátum við ásamt fjölda manns.  Það fyrsta sem við gerðum var að fara úr skóm og sokkur og svo kom maður sér notalega fyrir í sófanum með allar pullurnar.  Stráksi kom svo með ilmandi vatn í katli og fat sem hann notaði til að þvo okkur um hendurnar.  Við pönntuðum okkur margrétta óvænta máltíð (kemur ekki að óvart).  Fengum fyrst alveg dandala ljómandi fína forrétti sem við vorum rosa ánægð með.  Hefði átt að borða mig sadda af þeim þar sem þeir voru lang bestir. Þetta voru allskonar brauð sem litu út eins og ofurþunn soðibrauð og síðan smurði maður ýmsu gúmmula þar ofaná.  Algjört jommi.  Næst komu aðalréttirnir sem voru ekki alveg jafn góðir, en samt allt í lagi.  Að lokum fengum við 2 eftirrétti sem ég gat því miður ekki smakkað á þar sem í öðrum voru fersk jarðaber og í hinum var allt morandi í hnetum.  Sem betur fer er ég orðin aðeins varkárari í sambandi við mat en þarna hefði nú getað farið illa.  Ægir var ekki mjög ánægður þegar hann borgaði þar sem við tókum það skýrt fram að ég væri með ávaxta og hnetu ofnæmi og það mætti alls ekki vera í matnum.  Frekar súr endir á annars frábæru kvöldi.  Veðrið var mjög gott og því upplagt að rölta upp á hótel þrátt fyrir langa vegalengd.

IMG_3055 (Medium)

IMG_3059 (Medium)

IMG_3052_edited-1 (Medium) Þessi sæta magadansmær sá um að gleðja mannskapinn

IMG_3057 (Medium) Ekki oft sem bobbarnir á manni koma svona ljómandi vel fram á mynd..hihi :)  Litlu vöðvarnir mínir á öxlinni krúttlegir.  Þetta er svona eins og ég hafi klippt haus af mér og sett á annan búik. Frekar fyndið. :)

 

 

Vöknuðum nú frekar snemma á laugardaginn.  Drifum okkur í morgunmat á hótelinu sem var mjög góður.  Fengum okkur svo göngu, komum við á kaffihúsum og litum við á markaði.

IMG_3065 (Medium) flottur staður sem við römpuðum á. 

Tókum svo leigara á Jamie Oliver veitingastaðinn sem heitir 15.  Eins gott þar sem það kom biluð rigning.  Staðurinn æði og maturinn algjört jommí.  Ægir fékk sér svepparisotto en ég fór í steikina :) stoppuðum heillengi þarna og nutum þess alveg í botn að vera barnlaus.

IMG_3070

IMG_3071

Þessi gaur bjó til pasta STANSLAUST :)

IMG_3074

Eftir þettan gómsæta mat röltum við frá Jamie og inn í bæ.  Fórum í búðarráp þar sem Ægir keypti sér m.a nýjan frakka, mjög flottur.  Vorum samt búin að ákveða það að þetta yrði ekki verslunarferð. Ætluðum ekki að eyða tímanum inni í búðum.  Drifum okkur svo upp á hótel þar sem maður sturtaði sig og reyndi að gera sig sætan.  Tókum okkur svo taxa á veitingastað sem við vorum líka búin að bóka borð á.  Sá staður heitir Le Zink.  Mjög flottur staður en maturinn var ekki alveg að gera sig fyrir mig.  Enn og aftur var það óvæntur matseðill sem við völdum okkur. Hefði betur átt að sleppa því. Ég er loksins búin að viðurkenna það fyrir Ægi að ég sé matvönd.  Hef aldrei tekið það í mál fyrr en núna.  Mér finnst auðvitað matur misgóður eins og öllum en fúlsa nú sjaldan við einhverju sem hægt er að éta,, en..
Við sögðum þeim að sjálfsögðu frá ofnæmum mínum og eins að ég væri alls ekki fyrir hráan fisk og já já allt í lagi.
Fyrsti rétturinn sem við fengum var einhver lifur og pate sem mér fannst alveg virkilega vont þannig að ég át það ekki.  Næst fengum við fiskflak með roði sem smakkaðist voða fínt.  Hefði samt viljað fá meira meðlæti heldur en bara grænar baunir.  Síðan kom eitthvað hindberjafrauð sem ég þorði nú lítið að smakka  og þar á eftir kom svo sjokkið.  Kanína með smátterís meðlæti takk fyrir.  Ég gat bara alls ekki hugsað mér að taka einn bita af þessu krútti.  Sá bara fyrir mér Raphael gamla kanínukarlinn minn sem ég átti til fjölda ára.  Mér var farið að líða ansi illa á þessum fína stað.  Þjónarnir löbbuðu heillengi framhjá borðinu án þess að taka diskana okkar eftir að Ægir var búinn að borða.  Enginn vildi tala við þessa furðulegu sem át ekki neitt.   Loksins kom ótrúlega fýluleg stelpa og sagði ég við hana að ég bara gæti ekki hugsað mér að borða kanínu.   Eftirétturinn var glataður.  Ægir fékk sér reyndar fullt af ostum sem honum fannst góðir en ég fékk hallærislegan vanilu ís sem var hundvondur.  Gaman að fara með mér út að borða eða fá mig í mat hihi :).
Frekar súrt að spreða hrikalega miklum pening í eitt lítið fiskflak.  Held við höfum borgða 200 evrur á þessum stað eins og á þeim Líbanska.  Jamie kostaði okkur mun minna, enda bara einn réttur þar :)
Ég var orðin sársvöng eftir að hafa setið á þessum stað í nokkra klukkutíma þannig að ég endaði á því að fara inn á kínastað á leiðinni heim og fá mér sma núðlur fyrir svefninn.

Fengum okkur aftur góðan morgunmat á hótelinu á sunnudagsmorguninn.  Röltum svo á markað sem er kallaður sunnudagsmarkaðurinn þar sem listamenn sýna verk sín.  Fegnum hellidemmbu á okkur og forðuðum okkur inn í æðislega bókabúð þar sem við hefðum getað verið allan daginn.  Ég komst aldrei upp á aðra hæð einu sinni en ég held að hæðirnar hafi verið 3 eða 4.  Ægir keypit sér 3 bækur og ég 1.
Settumst niður á kaffihús og kíktum í bækurnar á meðan ég smjattaði á lauksúpu..jommí.
Tókum lestina heim og vorum í Oisterwijk klukkan fjögur.  Mamma beið heima (en grísirnir 2 voru í góðu yfirlæti hjá henni) með heitar pönnsur. Jommí. Veðrið var frábært þannig að við drifum okkur beint á Trampolínstaðinn. 

IMGP7477_edited-1 (Medium) Þær systur áttu ánægjulega helgi með ömmu.  Þær fengu t.d ávexti og súkkulaði fondu á kósýkvöldi og fóru í prinsessuleik.

IMGP7488 (Medium)

Seinni vikuna sem mamma var hjá okkur leigði hún sér hjól með barnastól.  Við nutum þess í botn að hjóla með henni út í skóg og skoða bæinn.  Frábært að ferðast um a hjóli hér.

Ægir átti afmæli þann 24 og tók hann sér frí í tilefni dagsins.  Fengum okkur morgunhressingu úti í garði og keyrðum svo í apagarð  sem er í rétt rúmlega klukkutíma fjarðlægð.  Höfum farið þangað einu sinni áður en Malín 2x.  Þetta er risastór garður þar sem mikið af öpunum ganga um lausir.  Voða gaman.  Vorum búin að ætla okkur að grilla um kvöldið en því miður var ekkert gas í boði.  Komum við á grískum stað sem við höfum ekki prófað áður (merkilegt nok) og tókum take away sem við borðuðum úti í garði með bestu lyst.

IMG_3095 (Medium) Systur mættar í apagarðin í blíðu.

IMG_3101 (Medium) Agalega krúttlegir þessir apar sem skoppa út um allt hjá manni.

IMG_3104 (Medium) Górillurnar flottar. Voru með þvílíku atriðin :)

IMG_3127 (Medium) Mamma og "dýrið" (Emma)

IMG_3142 (Medium) Aldrei verður maður of gamall fyrir rennibrautir.  Þessi var rosaleg.  Hrikalega löng og snúin. Malín fór fyrst alein en svo sá ég að þessi braut var nú bara fyrir mun eldri krakka, eða fyrir krakka yfir 1,20.  Ég dreif mig því með henni í næstu ferð og gólaði alla leiðina.

IMG_3145 (Medium) Emman fór í aðeins styttri braut en samt bara gaman.

IMG_3152 (Medium) Sumir voru í því að gera flottar æfingar :)

 

Á föstudagskvöldið fór mamma svo heim :(.  Ægir kom snemma heim úr vinnu þannig að við mamma áttum ánægjulegan dag saman.  Hjóluðum niður í bæ, settumst á kaffihús og fórum í búðarráp í bongoblíðu.  Mamma náði að kaupa sér tvennar flottar buxur í ferðinni á frábæru verði.  Ég verslaði nú mun meira þó ég hefði ekki ætlað að kaupa neitt.  Keypti mér einar buxur (alveg eins og mömmu), 2 gollur sem ég hef verið að rembast við að finna lengi, stutterma svarta skyrtu og ýmislegt á stelpurnar fyrir veturinn. Allt á mjög fínu verði.  Ég held að það sé ekki sami skítahátturinn í búðarfólki hér eins og heima.  Hef ekki tekið eftir því að verðin séu hækkuð fyrir útsölur eins og gert er á mörgum stöðum heima, enda er það ekki alveg normal.  Skiluðum svo hjólinu hennar mömmu og héldum heim á leið þar sem ég bauð upp á síðustu kvöldmáltíðina í bili.  Gerði ferskt salat með kjúklingi, tómötum, olívum, brauðteningum, ansjósum og fleiru.

Veðrið búið að vera æði síðan mamma fór.  Um 30 gráður og sól og ský til skiptis. Fórum á sunnudagsmorguninn í Hondsberg sem er æðislegur staður hérna í Oisterwijk.  Þar eru bæði leiktæki, dýr og allt ótrúlega fallegt.  Eftir hádegið drifum við okkur til Haren sem er í 10 mín. fjarðlægð og sáum sirkus :)

IMG_3175 (Medium)

IMG_3180 (Medium)

IMG_3184 (Medium) Sátum á 7 bekk og Emmu tóks að detta niður um þetta pínu litla gat.  Skil ekki í ósköpunum hvernig hún fór að því að komast niður og ekki heldur að hún skildi ekki slasa sig neitt.  Það var frekar erfitt að ná henni upp aftur, enda frekar mikið hátt fall.

IMG_3189 (Medium) Við erum mikið búin að sulla og stripplast í garðinum okkar undanfarið.  Voða næs.

IMGP7447 (Medium)  Emma er í því að gera æfingar þessa dagan.  Þessi er í uppáhaldi hjá henni.

 

Jæja.
Held þetta sé nóg í bili og gott betur.
dúdú

þriðjudagur, júlí 08, 2008

Holland-Spánn-Holland

Hvar á maður bara að byrja?. 
Júbb. Byrjum á Duran :). Þeir klikka ekki frekar en fyrri daginn.  Við hjónakornin keyrðum til Brussel þann 18 juni.  Duran Duran héldu tónleika í leikhúsi, sviðið mjög lítið og því urðu tónleikarnir allt öðruvísi en þeir 2 fyrri sem ég fór á í Amsterdam og í Antwerpen.  Fólk sat í sætum fyrir framan sviðið (þó ekki lengi :) )  en við vorum uppi á svölum vinstra megin og talaði Ægir um það að þetta væri bara eins og í Sjallanum í gamla daga:). Algjört æði æði æði. Keypti mér nýjan rándýran bol á 4000 kall. Mynd af honum síðar :).  Mættum akkúrat á réttum tíma í sætin. Um leið og við settumst byrjuðu DD að spila.  Það tók heila eilífð að finna stæði. Brussel er nú meiri borgin.  Fyndið að segja frá því að á einum umferðarljósum kom bíll upp að okkur til að spurja til vegar :). Dúdarnir vildi ólmir vita hvernig þeir færu að því að finna Duran tónleikana..hihi.

IMG_2420 (Medium)

(Músin tók mynd af múttunni (í gamla bolnum) áður en haldið var á tónleika :).  )

IMG_2440 (Medium)

John og Simon búnir að fara í orgel tíma :).  Roger flottur með míni trommur.  Vantaði bara Andy karlinn.

Morguninn eftir héldum við út á flugvöll. Frí frí frí. Eða þannig.  Það er auðtitað ekki mikkð frí þegar "dýrið" er nálægt. En alltaf gaman að breyta um umhverfi og hitta skemmtilegt fólk.
IMG_2446 (Medium)

Fyrsti morgunmaturinn á Spáni :)

 

IMG_2505 (Medium)

Sæta amælisstelpan. 21 mánaða.

IMG_2521 (Medium)

við vorum upp á efstu hæð :)

IMG_2523 (Medium)

flott barnasundlaug

IMG_2524 (Medium)

nóg af bekkjum til að flatmaga á

IMG_2525 (Medium)

Músin mætt á ströndina

IMG_2542 (Medium)

Diskóið á hótelinu var skemmtilegast í heimi.  Held að þær systur hafi náð því að dansa öll kvöld fyrir utan eitt (fyrir utan þann tíma sem við vorum í brúðkaupi)
Við fórum niður í bæ að borða á kvöldi númer 2 með öllu fólkinu, rosa gaman. Það er bara ekki mjög gaman að taka dýrið með á veitingastaði. Hún nennir ekki að sitja kyrr, vill bara vaða af stað og reynir eins og hún getur að stinga af.  Fórum því bara þetta kvöld og eitt hádegið út að borða á fínan stað sem við gerðum næst síðasta daginn. Þá líka sáum við það ansi vel af hverju við hefðum ekki gert meira af því að borða á flottum stöðum.  Fórum reyndar 2x á rosa góðan vok stað sem var rétt hjá hótelinu. Gátum borðað á okkur gat og borgað mjög lítið fyrir sem var frábært. Annars fannst okkur mjög dýrt að fara út að borða þarna á spáni og eins var rándýrt að kaupa í matinn í súpermarkaðinum.  Spánn greinilega mun dýrari en við erum vön hér í hollandi.
Við borðuðum oftast í hótelgarðinum eða í kringlunni sem var við hliðina á hótelinu, (ekki kannski mjög spennandi) en þar gat hún aðeins dundað sér í leiktækjum á meðan við borðuðum.  Ægir sótti 3x mat handa okkur og svo held ég svei mér þá að ég hafi eldað 2 x :).

 
Ótrúlega gaman að fylgjast með Malín læra alla dansana. Þetta var mjög sniðugt þarna hjá krökkunum sem sáu um dagskrána fyrir börnin. Þau voru með ein 7 lög sem þau spiluðu á hverju kvöldi. Síðan var dans við hvert lag.  Krakkarnir ekki lengi að læra þetta allt saman. Emma dansaði og dansaði en fannst mest spennandi að vera bara uppi á sviði :) hihi...en hún var reyndar eina barnið sem fékk að vera uppi á sviði með liðinu eins og hún vilid. Aldrei rekin niður, enda langflottust.

 

IMG_2461 (Medium)

Flott saman.  Músin, Aron Orri og Sigurður Gísli. (öll fædd 2004)

IMG_2546 (Medium)
Músin að taka mynd.

IMG_2551 (Medium)

Krútta krútt

IMG_2553_edited-1 (Medium)

Lubbilína að fá sér smá aloa vera gel

 

IMG_2561_edited-1 (Medium)

Emma ísgrís mætt á diskó

IMG_2562 (Medium)

Ísgrís líka.  Í dansstuði.

IMG_2577 (Medium)

Systur dolfallnar yfir Flamingo dans-sýningu.

IMG_2583 (Medium)

Ótrúlga gaman að vera með Hugrúnu og Örnu Sirrý í 2 vikur :)  Frábærar frænkur.

IMG_2588 (Medium)

Malín var rosa duglega að taka þátt í öllum leikjum sem í boði voru á hótleinu.  Alltarf eitthvað um að vera fyrir krakkana. Frekar mikið gaman. Emman aðeins of lítil.

IMG_2595 (Medium)

Mynd sem Malín tók af okkur í litlum bæ sem heitir Mijas. Hann er staðsettur rétt fyrir ofan ströndina sem við vorum á.

IMG_2596 (Medium)

Flott útsýni.

IMG_2600 (Medium) IMG_2603 (Medium)
Flottur bær

IMG_2607 (Medium)

Emman búin að finna nýjan vin til að ráðskast með.

IMG_2614 (Medium) 
Malín vann einn leikinn sem fram fór á hótelinu. :)
Fékk að fara með einum stjórnandanum á barinn þar sem hún fékk kók í verðlaun. Frekar mikið sátt við það.

IMG_2457 (Medium)

Stuð í nýju fínu kerrunni sem var keypt fyrir ferðina.

IMG_2568 (Medium)

Fengum að sjá eðlu og slöngusýningu eitt kvöldið. Mjög gaman að klappa þessari sætu eðlu. Ég fékk líka að halda á 3,5 metra slöngu. Á mynd af því sem ég þarf að skanna :).


 IMG_2616_edited-1 (Medium)

Músin með Sigga sæta. Þau voru eitthvað að tala um að gifta sig :)

IMG_2624_edited-1 (Medium)
Flott saman frændsystkinin.

IMG_2620 (Medium)

Á hótelinu voru 3 -5 sýningar á viku. Held að við höfum bara misst af einni á þessum 2 vikum, enda dvöldum við nánast öll kvöld í hótelgarðinum eða vorum komin heim fyrir klukkan hálf níu til að ná barnadiskóinu.

IMG_2651 (Medium)

Föstudaginn 27 juni keyrðum við frá Costa del sol til lítils þorps sem heitir Campillo de Ranasum. Þetta litla ótrúlega fallega þorp er í 2 tíma fjarðlægð lengst upp í fjöllunum fyrir ofan Madrid.  Þetta ferðalag okkar tók allan daginn. Lögðum af stað klukkan tíu að morgni og vorum mætt á svæðið klukkan sjö um kvöldið.

IMG_2635 (Medium)

IMG_2662 (Medium) 

IMG_2648 (Medium)

IMG_2657 (Medium)

IMG_2649 (Medium)

IMG_2665 (Medium)

Aðeins verið að sóla sig fyrir brúðkaupið.

IMG_2762 (Medium) 

Fallega húsið sem við gistum í.

IMG_2666 (Medium)

vorum með þennan fína garð

IMG_2669 (Medium)

Marío brúðgumi lengst til hægri ásamt pabba sínum og bróður.

IMG_2670 (Medium)

Það var frekar mikið heitt þennan daginn eða hátt í 40 gráður held ég.  Öfundaði ekki karlmennina á svæðinu að vera í jakkafötum og lokuðum skóm.

IMG_2684 (Medium)

Berglind sem var stórglæsileg að mæta í athöfnina ásamt Ragnari pabba sínum.

Athöfnin var mjög falleg og umhverfið skemmdi ekki fyrir.  Eftir athöfn var boðið upp á smárétti og ýmsa drykki. Þar á eftir var veislan haldin í stóru tjaldi þar sem boðið var upp á 3 rétta máltíð.  Emma var í stuði og neitaði að sofna í kerrunni sinni. Ægir fór svo með þær systur upp í hús að sofa klukkan rúmlega tólf en ég fékk að vera lengur og fór ekki að sofa fyrr en klukkan þrjú.  Boðið var upp á diskótek og þar var mikið stuð og mikið fjör og enn og aftur var boðið upp á kræsingar og í þetta sinn var það flott sætabrauð.  Síðustu gestir fóru ekki að sofa fyrr en verða sex.

IMG_2721 (Medium)

Gunndís mamma Berglindar var stórglæsileg eins og dóttirin. Hún og Ragnar tjúttuðu fram á nótt á diskóinu. Frekar flott :)

IMG_2715 (Medium)

Snuddubínan hjá pabba sínum.

IMG_2735_edited-1 (Medium)

Helgi Seljan og fjölskylda voru með okkur í húsi ásamt mörgum öðrum.  Hann varð besti vinur Emmu.  Emmu fannst líka dóttir hans algjört krútt.

IMG_2756_edited-1 (Medium)

Frænkur Marío voru ekkert smá flottar og alveg í stíl :)

IMG_2738 (Medium)

IMG_2760 (Medium)

Aðeins verið að spjalla meira við Helga.

IMG_2740 (Medium)
Það var líka ansi frábært að vera með þessum :).

IMG_2750 (Medium)

Malín með Dóru frænku sinni.

IMG_2763 (Medium)

Ferðalagið heim á hótel á sunnudeginum gékk ótrúlega vel.  Keyrðum endalaust og stoppuðum mjög stutt.  Við vöknuðum klukkan níu og fengum okkur morgunmat og vorum farin af stað á slaginu tíu.  Vorum svo mætt í sundlaugina á hótelinu klukkan rétt rúmlega fimm :). Jii hvað það var næs.  Okkur varð nú hugsað til allra hinna sem voru þá rétt að hefja sitt ferðalag heim en þau voru sótt með rútu og keyrð á flugvöllinn í Madríd þar sem þau flugu til Malaga.
Ægir keypti dvd spilara og 2 skjái fyrir þetta ferðalag sem bjargaði okkur alveg.  Á meðan Bóbó bansi var látinn rúlla að þá var dýrið sátt :).
IMG_2768 (Medium)

Malín að busla með Kristjáni frænda sínum.

IMG_2784 (Medium)

Ægir að sóla sig þarna til vinstri :)  Nafna mín og Hreinsi hennar þar fyrir aftan.

IMG_2785 (Medium)

Flottur sundlaugargarður og frábært að vera þarna.

IMG_2788 (Medium)

Verið að bera saman bækur sínar :)

IMG_2791 (Medium)

Sætar prinsessur á leið á diskó

IMG_2817_edited-1 (Medium)

Mæðgur í svaka stuði

IMG_2806 (Medium)

Jónas, Kristín og Aron Orri

IMG_2814_edited-1 (Medium)

Músin fékk augnskugga og gloss. Frekar sátt

IMG_2816_edited-1 (Medium)

Emma að aðstoða uppi á sviði.

IMG_2819 (Medium)

Bjarni frændi að kenna músinni á tölvuspil

IMG_2824 (Medium)

Þessi sæta veitti okkur Ægi félagsskap á svölunum eitt kvöldið.

IMG_2831 (Medium)

Ægir fór á túnfiskveiðar með strákunum einn daginn.  Mjög skemmtilegt þrátt fyrir lítinn afla.

IMG_2834 (Medium) 

Ótrúlega flottar snekkjur þarna sem kostuðu frekar mikið. Held að Ægir hafi verið að tala um að ein sem var á sölu hafi verið á rúmleag einn milljarð.  Sæll.

IMG_2835 (Medium)

IMG_2862 (Medium)

Kósýstund. Þórunn, Emma, Malín og Ragnar töffari.

IMG_2873 (Medium)

Fengum okkur bíl og keyrðum á aðra strönd og skoðuðum bátahöfn.

IMG_2876 (Medium)

Borðuðum á æðislegum stað heilsteiktan fisk sem var innbakaður í salti.  Mjög gott.
Emma sat svona í c.a 5 mín. og svo var gamanið búið.  Við Ægir skiptumst á að borða á meðan hitt hljóp á eftir henni.

IMG_2880 (Medium)

Flott útsýni frá veitingastaðnum.

IMG_2883 (Medium)

Emma ætlaði að keyra heim.

IMG_2886 (Medium)

Aðeins verið að leggja sig fyrir diskóið

IMG_2892 (Medium)

Lítill selur

IMG_2920 (Medium)

Hvað ætti ég nú að fá mér?

IMG_2896 (Medium)

Notalegt að busla í barnalauginni

IMG_2923 (Medium)

Síðasta kvöldmáltíðin var á svölunum.  Borðuðum rosa gott salat með túnfiski, eggjum, lauk, tómötum, ólífum og fleiru.  Jommí.

IMG_2942 (Medium)

Síðasta diskóið.

IMG_2944_edited-1 (Medium)

Partur af fólkinu sem var með krakkahópinn.  Man ekki hvað stelpurnar heita en stráksi heitir Mark.

IMG_2952 (Medium)

Fengum æðislega mexico mat áður en við lögðum í hann á flugvöllinn.

IMG_2953 (Medium)

Snuddan fer ekki langt frá manni. (örfáum mín. eftir þessa mynd var mín rokin út af staðnum.)

Ferðalagið heim gékk bara nokkuð vel. Emma reyndar mjög leiðinleg í flugvélinni en það er auðvitað ekki nýjar fréttir.  Hún sofnaði nú reyndar og svaf í klukkutíma en vaknaði við gjammið í kerlingunni sem ætlaði að reyna að selja eitthvað drasl.

Keyrðum svo frá Amsterdam og hingað heim og vorum kominn í hús um 22:00.  Stelpurnar voru í stuði þrátt fyrir að vera búnar að vaka þvílíkt mikið.  Fengu núðlur og horfðu á teiknimyndir til klukkan að ganga miðnætti. 

Þær systur eru ennþá að jafna sig eftir ferðina.  Fóru alltaf seint að sofa og eru þvílíkt langþreyttar.  Emma svaf til hálf tíu fyrsta daginn eftir að við komum heim og til hálf ellefu daginn eftir. 3 síðustu morgna hefur hún sofið til hálf níu. Þvílíkt notalegt.  Malín sefur líka og sefur þangað til hún er vakin.

Við erum mjög sátt við þessa ferð.  Æðislega gaman að hitta ættingja  Ægis og vera með þeim á hótelinu og í brúðkaupinu.
Við eigum pottþétt eftir að fara aftur á þennan sama stað.  Kannski bara strax á næsta ári, hver veit :).


Fyrst ég er byrjuð á þessu ofurbloggi læt ég þessar fylgja með.
IMG_2965_edited-1 (Medium)

Daginn eftir heimkomu fórum við á Trampólínstaðinn okkar þar sem við enduðum á að fá okkur kvöldverð. Foreldrarnir ekki alveg komnir í eldunargírinn eftir ferðalagið.
Emma frekar spennt yfir því að hitta vini sína geitalingana aftur.

IMG_2967_edited-1 (Medium)

Malín bóndakonan mín.

IMG_2968 (Medium)

Á laugardaginn hjóluðum við lengst inn í skóg og fundum nýjan trampólínstað.  Þetta er pönnukökustaður þar sem hægt er að fá 100 tegundir. Þarna er hoppikastali, trampólín, fullt af hjólum, rennibraut og rólum.
Ég fékk mér tælenska pönnsu en stelpurnar fengu pönnsu með ýmsum ávöxtum. Rosa flott.