MATARGATIÐ

sunnudagur, júlí 30, 2006

Rock Star Supernova

Þetta er uppáhalds þátturinn minn þessa dagana.
Get ekki beðið eftir næsta þætti. Gaman hvað hann Magni "okkar" er að standa sig vel :)
Áfram Ísland

föstudagur, júlí 28, 2006

Barnaland

Fullt af nýjum myndum inn á barnalandi :)
bæði inn í albúmi merktu ferðalag og einnig í julí.

Belgia

Fórum í stutt ferðalag snemma á miðvikudaginn. Keyrðum á strandstað sem heitir Knokke-Heist en það er um 2 og hálfur tími. Ætluðum svo aldrei að finna bílastæði þarna en það hafðist sem betur fer fyrir rest. Fengum æðislegt veður en þetta var víst heitasti dagurinn á árinu sagði okkur kona ein, um 35 gráður (það var nú samt sennilega ekki jafn heitt þarna við sjóinn eins og í Brugge). Fundum samt ekki mikið fyrir hitanum svona upp við sjóinn. Rosalega notalegt að fá gustinn svona á sig :)
Þessi strönd var ekkert smá stór, maður sá hvorki hvar hún byrjaði né endaði.
Keyrðum svo seinnipartinn yfir til Brugge en það var tæpur klukkutími. Bókuðum okkur inn á hótelið okkar sem var staðsett alveg í miðbænum, sturtuðum okkur öll (ekki veitti af eftir strandferðina) og drifum okkur út í göngutúr í blíðunni. Þarna eru hrikalega fallegar byggingar, fullt af síkjum og kaffi og veitingahús á hverju horni. Borðum á einu veitingahúsi sem staðsett var á einu torginu og fengum við okkur bæði fína steik. Malín fékk sér ommilettu sem hún reif alveg í sig :) Við erum ekki ennþá að ná okkur eftir reikninginn sem við fengum eftir þessa ferð :( hundrað og tíu evrur takk fyrir sem er nú bara alveg slatti miðað við reikningana sem við höfum verið að fá hér í Hollandi. Bjórinn kostaði heilar 7 evrur sem er um 700 kallinn, drykkirnir mínir og Malínar voru á um 5 evrur stykkið og Ommilettan hennar Malínar kostaði næstum því 13 evrur takk fyrir. Þetta voru sennilega heil 2 egg og nokkrir sveppir.
Röltum svo aðeins um en fórum svo bara snemma upp á hótel alveg búin á því. Nóttin var frekar erfið, en það var hrikalegur hiti inni í herberginu okkar. Það varð okkur sennilega til lífs að við skildum taka viftuna okkar góðu með okkur.
Eftir morgunmat röltum við aðeins um bæinn og fórum í æðislega siglingu um síkin þarna. Mikið rosalega er fallegt þarna :) Það er líka bara svo frábært að geta setið og slappað af á meðan maður nýtur útsýnisins. Ég var nefnilega ekki í miklu gönguformi og því var þetta alveg upplagt fyrir okkur. Maður sér líka svo mikið á stuttum tíma þegar maður fer í svona siglingar. En fyrir ykkur sem eruð í ferðahugleiðingum, að þá mæli ég sko með bæði Brugge og Gent í Belgíu. Æðislegar gamlar borgir sem maður getur skoðað margt og mikið. Eftir hádegið komum við svo við í Antwerpen á leiðinni heim. Röltum þar um en það höfum við gert oft áður. Það er líka borg sem vert er að heimsækja.
Vorum komin heim rétt fyrir kvöldmat. Fengum okkur skyr og ber og allir glaðir og ánægðir með vel heppnaða ferð.

Ungfru saetust tilbuin i sma ferdalag. Buin ad fa nyjan sumarkjol og nyja sko :)

Maett a strondina i Knokke-Heist i Belgiu

Hrikalega stor og flott strond.

hvalurinn matadur upp a thurru landi fyrst

maett i olduganginn

kruttan ad leika ser.

allt ad fyllast

adeins verid ad hvila sig

Husin i Brugge falleg i kvoldsolinni

Bordudum a veitingastad tharna. Erum enntha i sjokki yfir verdinu tharna. Fengum alveg himinhaan reikning. Obbosi. Eg held bara ad thad se alltaf dyrt ad borda vid falleg torg, alveg sama i hvada borg madur er.

rolt um Brugge eftir kvoldmatinn.

flott hus :)

Maeli sko med svona siglingu. Frabaert ad geta sed svona mikid a stuttum tima, serstaklega thar sem madur getur ekki labbad eins mikid um eins og madur vildi.

Forum i frabaera siglingu um Brugge. Dudinn sem stirdi batnum taladi rosa morg tungumal og babbladi meira ad segja pinu japonsku thar sem thad var ein japonsk med i for :)


Thetta kallast astarvatnid. Tharna halda margir svanir sig :)

I thessu nunnuklaustri bua nokkrar nunnur.






elsta bruin i Brugge. Byggd fimmtanhundrud og eitthvad :)


Maedgur bunar ad versla smatteri i Brugge

þriðjudagur, júlí 25, 2006


28 vikur i dag. Af myndunum ad daema ad tha hefur bumban nu bara ekkert staekkad sidan i sidustu myndatoku. Barnid spriklar nanast ollum stundum og virdist litid sofa. Hun heldur mjog oft fyrir mer voku a nottunni sem mer finnst nu ekki nogu snidugt. Fae samdrattarverki a hverjum degi, yfirleitt oft a dag og standa their stundum yfir i halftima og jafnvel klukkutima, serstaklega ef eg er ad labba eda bara hjola rolega. Thad er astand a manni. Eg segi nu ekki annad.

mánudagur, júlí 24, 2006


Bondinn 31 ars i dag. Forum og soludum okkur a strondinni eftir hadegid og nutum vedursins enn einu sinni. Hollenska vedurspain segir ad thessi juli manudur hafi verid sa heitasti sidan maelingar hofust en thad var arid 1706. :) Hitamet var einnig slegid en hitinn maeldis mestur thann 19 juni en tha for hann upp i 35,7 gradur. Einnig hefur urkomna verid litil sem engin.

Forum ut ad borda i tilefni dagsins a Indonesiskan stad og fengum eina 20 retti. Hrikalega gaman ad smakka a svona morgu og svo var thetta lika flest allt aedislega gott.

Paella eldud i fyrsta sinn i gaer :)

laugardagur, júlí 22, 2006


Thad er engin kertatid hja okkur thessa dagana. Adeins of mikill hiti :)

föstudagur, júlí 21, 2006

Skemmtilegur dagur.

Alltaf sami hitinn hér hjá okkur. Frekar erfitt að vera mikið á ferli í þessum hita, maður mókir bara og vill helst dorma. Fórum að sofa fyrir miðnætti í gær en vöknuðum ekki fyrr en klukkan hálf tíu í morgun :) held bara að þetta sé nýtt með hjá henni. Man bara ekki eftir því að hún hafi sofið svona lengi. Það hefur a.m.k ekki komið oft fyrir. Við sem ætluðum að taka daginn snemma svona einu sinni.
Rifum í okkur morgunmat og keyrðum svo í einn og hálfan tíma í apagarð sem heitir Apenheul. Ég var búin að smyrja nesti til að hafa í dag en það var nú bara étið strax við innganginn þar sem sumir voru orðnir svangir strax :)
Það var alveg rosalega gaman að vera í þessum garði. Apagarðurinn er rosa stór en hann er staðsettur inn í öðrum garði (hálfgerðum lystigarði) sem er ennþá ennþá stærri. Við náðum því miður ekkert að skoða okkur um þar þar sem við vorum ekki mætt á svæðið fyrr en um hádegi. Við innganginn fengum við sérstakar töskur sem við þurftum að geyma allt dótið okkar í (sem við vildum hafa með inn í garðinn) Þessar töskur eru þannig að aparnir geta ekki opnað þær :) Svo má maður ekki vera með mat eða drykki á mörgum stöðum þarna inni þar sem margar apategundirnar ganga bara um lausar. Frekar skemmtilegt að sjá þá svona nálægt sér. Ég var nú reyndar búin að vonast til þess að geta bara fengið að halda á og knúsa apana en það er víst ekki þannig. Maður má sem sagt ekki reyna að ná öpunum eða klappa þeim. Malín náði nú samt að strjúka einum litlum apastubbi þarna. Fannst þeir algjört æði. Tókum rosa mikið upp á vídeóvélina. Veit að sumir eiga eftir að hafa mikið gaman af því að horfa á apaspól

Maett i apagardinn

saetir



viljid thid leika?

notalegt ad lura a gorillunni



gott a� lura adeins i hitanum

miðvikudagur, júlí 19, 2006


Gott ad komast adeins inn (enda ekki nema 30 gradur thar) til ad kaela sig

bumbulinu vel heitt thessa dagana.

komin ut i laug.

gott ad fa sma klaka

Hadegismaturinn snaeddur uti i gardi i dag eins og reyndar allar adrar maltidir thessa dagana. Hitinn var 37 gradur i dag og ekki sky a himni. Bara sol sol sol.

Buin ad bjoda pabba gamla a runtinn

maett med flottum herramanni a runtinn :)

Malin fekk ad fara � gar i nokkur taeki i tivoliinu sem er herna nidri i bae nuna. Frekar mikid gaman.

Litla bondakonan min maett i dyragardinn til ad hitta uppahalds dyrin sin.

mánudagur, júlí 17, 2006


Uffenpuff. Svona er madur bara alla daga nuna. Ekki haegt ad vera i miklum fotum vegna hita. 33 gradur takk fyrir og thad spair enn meiri hita um midja viku. Held ad vid verdum bara ad halda okkur heima, liggja i lauginni og smjatta a is eda bara vera a runtinum med loftkaelinguna a fullu :)

Djúp og breið

Það sem maður getur fengið fáránleg lög á heilann. Ég er nú bara í því þessa dagana að raula einhverja vitleysu.
Vaknaði upp í morgun með lagið djúp og breið á heilanum ef það heitir það þá. Ég held svei mér þá að við Anna Rósa höfum lært þetta lag á Vestmannsvatni árið 83 eða eitthvað álíka. Ég hef nú ekki mikið sungið þetta lag síðan en í dag hef ég ég verið með þetta gjörsamlega á heilanum. Datt samt í hug að þetta væri eitthvað sem væri hægt að syngja með Malín. Mig bara vantar eina línu inn í textann.
En svona er þetta ef mig minnir rétt.
Djúp og breið, djúp og breið, það er á sem rennur djúp og breið.
Djúp og breið, djúp og breið, það er á sem rennur djúp og breið.
Og hún rennur til mín og hún rennur til þín og hún bla bla bla bla blaaaaaa (hvað á að koma hér? Man það einhver? ) :) :)
Djúp og breið, djúp og breið það er á sem rennur djúp og breið.

Gríðarlega flókið lag og ennþá flóknari texti þarna á ferðinni :)
Annars væri nú gaman ef einhver gæti bent mér á skemmtileg lög sem hægt er að syngja með 2 ára söngfuglum. Ekki skemmir fyrir að hafa einhverjar hreyfingar með.

laugardagur, júlí 15, 2006

Frábært ferðalag.

Síðustu dagar hafa verið alveg frábærir. Keyrðum til Frakklands á mánudaginn var. Malín skoðaði bækur fyrstu tvo tímana og svaf svo í næstu tvo þannig að það var ekki mikið vesen á henni :) Stoppuðum á einum stað á leiðinni og borðuðum nestið okkar. Bókuðum okkur inn á hótel sem er í litlum bæ rétt fyrir utan París og rétt hjá Disney. Ég get ekki sagt að eg mæli með þessu hóteli, kannski allt í lagi að vera þarna í eina nótt en maður var nú alveg farinn að langa eitthvert annað eftir okkar þrjár nætur. Liðið þarna skilur bara nánast enga ensku. Sumir skildu ekkert, ekki einu sinni þegar Laufey sagðist ekkert vilja af barnum, það var frekar fyndið. Stelpan vissi bara ekkert hvað hún var að meina þannig að það endaði með því að Laufey pantaði sér vatn :)
Morgunverðarhlaðborðið var það lélegasta ever. Þarna var boðið upp á eina gerð af hörðum rúnstykkjum og horn. Ofaná þetta gat maður svo sett marmelaði og þá er það upp talið. Það var ekki einu sinni boðið upp á ost. :( Kaffið var hrikalega vont, allt of þunnt og bara skelfilegt á bragðið. Sem betur fer borguðum við bara fyrir að fá morgunmat einu sinni, en hina tvo morgnana fórum við bara í risastóra kringlu sem var þarna hjá og fengum okkur að borða.
Talandi um þessa Kringlu, je minn eini hvað súpermarkaðurinn í henni var stór. Ég hef nú bara sennilega aldrei séð svona stóra kjörbúð. Þetta voru sko nokkuð margar Hagkaupsbúðir (eins og er í Kringlunni) og þarna var hægt að versla allt sem mann vantar. Þ.e.a.s ef maður finnur það sem maður ætlar sér. Það er svo annað mál :)
Þegar við vorum búin að bóka okkur inn á hótelið keyrðum við í næsta bæ en það er 20.000 manna bær sem Disney byggði. Það var frekar fyndið að keyra þarna um því allt var svo hrikalega gerfilegt eitthvað og óraunverulegt. Fyrir það fyrsta að þá var nánst enginn á ferli þarna. Öll húsin litu nánast alveg eins út og allt var eitthvað svo slétt og glansandi :)
Mér leið eins og ég væri komin í bíómyndina The Stepford Wives með Nicole Kidman þegar allt var bara plat.
Fórum svo á hótelið aftur og fengum okkur að borða á fínni veitingastaðnum sem þeir buðu uppa (sem var reyndar mjög fínn) þar sem hinn staðurinn sem í boði var, var lokaður. Fengum þarna 3 rétta máltíð sem var bara allt í lagi. Reyndar kom svolítið óhapp upp á. Eftir aðalréttinn byrjaði Malín að æla svona líka rosalega, gubbaði allt fína þykka teppið þeirra út, mig og sig. Greyjið litla varð bara alveg hrikalega slöpp allt í einu. Fórum bara með hana strax í ból og svaf hún ros vel um nóttina. Daginn eftir var búið að plana Disney, vorum búin að kaupa miða og alles.
Dagur 2.
Malín vaknaði spræk en var samt með 38 stiga hita. Við ákváðum að það væri alveg eins gott fyrir okkur að fara bara í Disney. Hún hefði orðið frekar mikið svekkt að missa af þessu, búin að bíða eftir þessu svo lengi. Það var líka ótrúlega mikill hiti inn í herberginu okkar og því ekki alveg efst á óskalistanum að hanga þar allan daginn. Malín var síðan svona líka spræk, hress og kát allan daginn. Ég var hinsvegar hálf ónýt fram að hádegi. Mér leið bara alveg hrikalega illa, var óglatt með svima og var í því að fá yfirliðstilfiningu. Ekki mjög spennandi. Ég held að það hafi samt bara verið að því að ég var ekkert búin að borða að ráði þann morguninn og svo hjálpaði það kannski ekki að hafa um eða yfir 30 gráður og sól. Mér fannst ég nú hálf nörraleg þarna. Ægir og Malín sátu úti á einum stað á meðan ég fór inn að kaupa mér samloku. Mér fór svo allt í einu að líða alveg hrikalega illa og varð ég beygja mig niður og anda vel og vandlega svo ég myndi ekki bara líða út af þarna út í röðinni. En eftir smá tíma fór mér að líða betur og það fór bara að vera voða gaman. Við dvöldum nánast eingöngu í þeim hluta garðsins sem er fyrir yngstu krakkana. Ægir fór með Malín í röð til að geta hitt Mínu Mús en það var eitt af því sem mátti bara ekki klikka. Hún var búin að tala um það svoooo lengi hvað hún ætlaði að knúsa hana mikið. Ég hélt nú kannski að hún myndi guggna þegar að henni kæmi en nei nei. Mín var sko ekkert hrædd. Fannst þetta algjört æði. Síðan var haldið í aðra röð til að hitta Bangsimon og var það nú ekkert síðra. Hann knúsaði Malín svo rosalega og Malín fannst voða gott að klappa honum enda er hann svo mjúkur. Við hittum svo Andres út á miðri götu og fengum mynd af okkur með honum og einnig sáum við rosa margar aðrar fígúrur eins og Guffa, Plútó, Mikka, Andresínu, Asnann í Bangsimon og marga marga fleiri. Við fórum svo 2 x í bátsferð og Ægir fór með Malín í hestahringekju sem var algjört æði. Við vorum þarna í garðinum alveg frá því það opnaði kl níu og til klukkan átta um kvöldið en þá var lokað. Við vorum búin að hugsa okkur að vera þarna í 2 daga en þetta var nú alveg nóg. Úfff hvað við löbbuðum mikið þennan dag. Svo er nú ekki ókeypis að vera þarna. Allt alveg fáránlega dýrt hvort sem það eru minjagripir, matur eða drykkir.
Það voru allir vel þreyttir eftir þennan dag og sváfum við bara öll ljómandi vel enda hitinn í herberginu okkar ekki óbærilegur eins og nóttina áður.
Dagur 3.
Vöknuðum ekki fyrr en kl níu. Fórum í sóru kringluna og keyptum okkur samlokur og djús sem við borðuðum bara í bílnum. Keyrðum svo til Parísar en það tók um klukkutíma. Vorum ekki nema hálftíma til Parísar en svo tók það okkur annan hálftíma að komast niður í bæ. Lögðum bílnum í bílastæðahúsi hjá Notre-Dame. Hittum svo Einar Gunnar, Laufeyju og stelpurnar fljótlega og fórum að rölta um borgina með þeim. Fórum á góðan veitingastað þar sem við fengum okkur ljúfenga rétti. Mér blöskraði nú samt pínu skammtastærðin :) ég pantaði mér kjúklingasalat og var ekki lengi að rífa það í mig enda var þetta frekar svona eins og forréttur heldur en aðalréttur. Frakkarnir ansi penir í skömmtunum :)
Við röltum svo alveg hrikalega langa (en skemmtilega og fallega ) leið upp að sigurboganum. Ég var þá næstum því punkteruð verð ég að segja. úffff hvað það er erfitt að labba svona mikið, grindin ekki alveg að þola það. Ég var líka búin að vera nánast stanslaust með samdráttarverki í eina 2 tíma þegar þangað var komi og er það nú kannski alveg nógu sniðugrt. Við ákváðum svo bara að taka neðanjarðarlest til baka að Notre-Dame sem var bara fínt. Ég er nú samt svo rugluð að ég fór að sjálfsögðu strax að hugsa um einhverjar sprengjur og vonda karla þegar þarna niður var komið. Æj mér er bara ekkert voða vel við að vera svona langt niðri í rassgati með svona ótrúlega mörgu fólki og mikið af þessu fólki er hálf skrítið og furðulegt eitthvað.
En...við komumst sem sagt á leiðarenda :)
Borðuðum svo 3 rétta á einhverjum stað sem leit nú bara ágætlega út svona utan frá, en o boy. Ég vildi óska þess að ég hefði ekki þurft á klósettið þarna. Þvílíkur viðbjóður. Þetta var svo mikið ógeð að ég ætla ekki að tala meira um það takk fyrir.
Við keyrðum svo aftur á hótelið okkar en Einar og fjölsk. voru búin að færa sig yfir á hótel í París.
Vorum ekki komin upp á hótel fyrr en að verða tíu og Malín bara hin hressasta :)
Dagur 4.
Vöknuum kl níu og fórum beint í stóru kringluna þar sem við settumst niður í einu bakaríinu, fengum okkur kaffi, eina langloku saman og pínu sætabrauð. Þetta kostaði nú næstum því augun úr en svona er það bara.
Fórum í kjörbúðina stóru og versluðum okkur snittubrauð, fullt af áleggi, ávöxtum, djúsi, kæfu, pylsum og fleira gúmmilaði. Brunuðum til Parísar og lögðum bílnum við hliðina á Eiffel turninum. Settumst þar niður og borðum þetta líka fína nesti :) Ekki mjög slæmt. Malín sofnaði svo bara og Einar og fjölsk. hittu okkur svo stuttu síðar. Stoppuðum þarna lengi lengi og nutum útsýnisins. Fórum svo og bókuðum okkur inn á hótel rétt hjá Notre-Dame. Við áttum reyndar bókað aftur á sveitahótelinu en ákváðum að fara bara degi fyrr og gista eina nótt í París sem við sjáum ekki eftir. Röltum svo niðri í bæ um stund og enduðum svo á því að fara út að borða á rosa flottan stað. Fengum okkur bæði 2 rétti. Ég fékk mér súpu í forrétt og eitthvað svín í aðalerétt en Ægir fékk sér nauta carpachio í forrétt og túnfisksteik í aðalrétt sem var víst sú besta sem hann hefur fengið :) Vorum ekki búin að borða fyrr en að ganga tíu og drifum við okkur þá bara upp á hótel. Við vorum öll dauðþreytt eftir daginn og vorum öll sofnuð klukkan ellefu.
Dagur 5. (14 juli sem er þjóðhátíðardagur Frakka)
Borðuðum morgunmat á hótelinu sem var bara mjög góður. Hann mátti nú alveg vera það enda rándýr. Ægir græjaði dótið okkar út í bíl og svo hittum við Einar og fjölsk. Sáum rosa flotta flugsýningu og fórum svo öll í siglingu um Signu sem var ekki leiðinlegt. Frábært að geta séð alla borgina sitjandi í huggulegheitum :)
Stoppuðum svo í bakaríi áður en við fórum af stað heim og fékk ég mér cappochino, brauð og tertu sem var algjör jommí :) (ein sem þarf að borða aðeins oftar en aðrir :) Lögðum af stað heim klukkan eitt og vorum að renna í hlað hér heima klukkan sex í gærkvöldi.
Við erum öll alveg svakalega ángæð með þessa ferð okkar. París er alveg frábær borg og langar okkur að fara þangað fljótega aftur. Það er samt alveg möst að komast þangað bara 2 næst. Þó að Malín hafi verið ótrúlega stillt allan tímann að þá er bara meiri afslöppun að vera barnlaus. Einar og Laufey voru alveg sammála þessu. Þau ætla sko að skilja stelpurnar eftir næst og fara bara 2 :)
Gallarnir við Frakkland eru þeir að það er allt alveg fáránlega dýrt þarna. Ég held að það sé t.d ekki ódýrara að ferðast þar heldur en bara um Ísland. Maturinn er kannski aðeins ódýrari en allir drykkir eru fáránlega dýrir. Kókglas kostaði td rúmar 300 kr á sumum veitingastöðum og bjórinn og léttvínið var bara jafn dýrt og heima. Svo er þetta fólk ekki alveg að gúddera það að maður kunni ekki frönsku. Sérstaklega ekki það fólk sem við hittum eins og t.d á hótelinu okkar. Það talaði bara stanslaust frönsku við man þó að maður skildi bara ekki neitt. Það var nú öðruvísi í Disney og á sumum stöðum í París. Þar töluðu nú sumir fína ensku :)
Það er nú líka ekki hægt að kvarta undan veðrinu sem við fengum, en það voru 30 gráður og sóla alla dagana :)
Segi þetta nóg af ferðasögum í bili.

Maett i Disney